Skip to content
zeno
Create a Station
Explore
Religious
Music
News
Podcasts
Bible
By Genre
By Location
By Language
Download App
Opens in a new window
Toggle Sidebar
zeno
Fotbolti.net
Fotbolti.net
Professional
Icelandic
Hlustaðu á podcastþættina vinsælu af Fótbolta.net. Fjölbreyttir þættir um allar hliðar fótboltans.
Website
Episodes
Episodes
300
09 September 2026
38 umferðir - Kominn tími á að Hull fái á sig mörk
Nýr þáttur af 38 umferðum er kominn í loftið en hlaðvarpið fjallar um draumaliðsleik enska boltans, Fantasy Premier League. Þáttastjórnendur eru Albert Guðmundsson og Sindri Kamban.Þeir settust niður í Coke stúdíóinu og tóku yfirferð á þriðju umferð ensku úrvalsdeildarinnar sem lauk á sunnudag, fóru yfir liðin sín, framtíðarplön og tóku stöðuna á 38 umferðir x Fótbolti.net deildinni þar sem efsta...
08 September 2026
Upphitunarþáttur Mjólkurbikarsins - Starfið undir á Laugardalsvelli?
Sigurjón Jónsson og Arnór Gauti Ragnarsson voru gestir í setti í sérstökum upphitunarþætti fyrir viðureign Aftureldingar og Breiðabliks í úrslitaleik Mjólkurbikarsins. Leikurinn fer fram á föstudaginn og er Sigurjón stuðningsmaður Breiðabliks en Arnór er Mosfellingur sem lék sömuleiðis með Breiðabliki. Farið var yfir leiki liðanna í undanúrslitum, gengi þeirra í sumar og spáð í úrslitaleikinn...
08 September 2026
Harkið - Nágrannar en ekki vinir
Harkið fór yfir stærstu atvikin í 21. umferð í 2. og 3.deild karla og val á Macron leikmönnum umferðarinnar í báðum deildum.Uppgjör 3.deild:14:42Uppgjör 2.deild:40:53Spá:01:17:14Harkið er i boði Serrano, AB Sportvörur og Macron. Þáttastjórnendur eru Guðbjörn Smári Birgisson og Grétar Óskarsson.
07 September 2026
Uppbótartíminn - Fáránleg spenna þegar deildin skiptist
Síðasta umferðin í Bestu deild kvenna fyrir skiptingu fór fram í kvöld. Núna er gríðarleg spenna framundan á bæði toppi og botni deildarinnar. Hvaða lið verður Íslandsmeistari og hvaða lið falla?Guðmundur Aðalsteinn, Magnús Haukur og Arnar Páll fóru yfir 18. umferðina og sitthvað fleira í Uppbótartímanum.Þátturinn er í boði Atlantsolíu og Coke.
07 September 2026
Enski boltinn - Hver stoppar eiginlega Arsenal?
Arsenal fór með sigur af hólmi í stórleik helgarinnar í ensku úrvalsdeildinni, 2-1 gegn Chelsea.Manchester United fékk rýting í bakið á lokasekúndunni gegn Everton og Alexander Isak skoraði tvö mörk fyrir Liverpool í sigri gegn nýliðum Ipswich.Tottenham náði í sitt fyrsta stig og Manchester City vann tæpan sigur á nýliðum Coventry.Guðmundur Aðalsteinn fór yfir þessa leiki og helstu sögulínur...
06 September 2026
Innkastið - KR hatar gras og Blikar bulla
Innkastið eftir 22. umferð, síðustu umferðina fyrir tvískiptingu. Elvar Geir, Valur Gunnars og Kári Snorra.Stjarnan og Valur þurfa að sætta sig við að spila í neðri hlutanum en Keflvíkingar komust í efri hlutann þrátt fyrir tap á Ljósanótt.Farið er yfir alla leikina og einnig rætt um lokaumferð Lengjudeildarinnar sem var á laugardag.
04 September 2026
Útvarpsþátturinn - Haukar fljúga upp og lokaumferðir framundan
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net er frumfluttur í hlaðvarpsútgáfu þessa vikuna. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór.Guðjón Pétur Lýðsson þjálfari Hauka er gestur þáttarins en Hafnarfjarðarliðið er komið upp í Lengjudeildina.Lokaumferðir eru framundan um helgina, síðasta umferð fyrir tvískiptingu Bestu deildarinnar og svo ræðst hvaða lið fellur með Ægi úr Lengjudeildinni.Í lok þáttar er sumarglugginn í...
02 September 2026
Uppbótartíminn - Glötuð tækifæri og stórt kærumál
Guðmundur Aðalsteinn og Arnar Páll Garðarsson komu sér vel fyrir í Coke stúdíóinu og fóru yfir 17. umferð Bestu deildar kvenna. Toppliðin tvö hikstuðu bæði, aftur. FH hefur núna fengið tvö tækifæri til að komast á toppinn en ekki nýtt sér þau. Á hinum enda töflunnar er spennan gríðarleg.Þá var rætt um stórt kærumál sem getur haft mikil áhrif á framhaldið í Bestu deildinni. Þátturinn er í boði...
02 September 2026
38 umferðir - Er hægt að selja Bruno eftir þessa frammistöðu?
Nýr þáttur af 38 umferðum er kominn í loftið en hlaðvarpið fjallar um draumaliðsleik enska boltans, Fantasy Premier League. Þáttastjórnendur eru Albert Guðmundsson og Sindri Kamban.Þeir settust niður í Coke stúdíóinu og tóku yfirferð á fyrstu umferð ensku úrvalsdeildarinnar sem lauk á mánudag, fóru yfir liðin sín, framtíðarplön og tóku stöðuna á 38 umferðir x Fótbolti.net deildinni þar sem efsta...
02 September 2026
Enski boltinn - Hull í draumalandi og glugganum lokað
Það eru fjögur lið með fullt hús stiga eftir tvo leiki í ensku úrvalsdeildinni. Það eru Arsenal, Chelsea, Manchester City og.. Hull City.Það er óhætt að segja að Hull sé í draumalandi eftir fyrstu tvo leikina en fyrir tímabil var þeim spáð 20. sæti í flestöllum spám.Guðmundur Aðalsteinn fékk því Friðleif Friðleifsson, mikinn Hull stuðningsmann, í heimsókn í Coke stúdíóið í kvöld. Haraldur Örn...